
Lightsnap fyrir íslensk brúðkaup
Brúðkaupsmyndir sem gestirnir taka
Ein filma sem fangar augnablikin fra gestsins auga. Veislugestir taka myndirnar, Lightsnap tekur þær saman og þið fáið minningarnar heimsendar útprentaðar.
Minningar frá öllum borðum, ekki bara einni myndavél
Lightsnap brúðkaupsfilma er sameiginleg viðburðafilma þar sem gestir leggja sitt af mörkum með því að taka myndir með sínum eigin síma.
Hún fangar dansgólfið, hláturinn við borðið, ræðurnar og smáatriðin sem parið missir oft af á stóra deginum!

Gestirnir skanna kóðann
Við útbúum QR kóða sem má setja á borðin, barinn eða við innganginn. Gestirnir skanna kóðan með símanum sínum og geta tekið myndir í sameignlegu filmuna á nokkrum sekúndum.
- QR kóði auðveldar gestum að taka þátt!
- Hentar vel á borðspjöld, við bar eða inngang

Brúðkaupsdagurinn í beinni
Gestir taka myndir frá sínu sjónarhorni yfir brúðkaupsdaginn. Ef þið viljið má sýna valin augnablik í beinni útsendingu á skjá í veislunni
- Bein útsending er valkvæm en skemmtilegur valkostur
- Gestir geta samt tekið myndir án þess að skjár sé í salnum

Myndirnar varðveita minningarnar
Eftir brúðkaupið safnast myndir allra gesta saman í eina sameiginlega brúðkaupsfilmu. Útkoman verður blanda af dansgólfi, vinum, fjölskyldu og litlu augnablikunum inn á milli.
- Ein sameiginleg filma frá öllum gestunum
- Fangar litlu augnablikin sem gera daginn einstakan

Útprentaðar myndir heimsendar
Lightsnap prentar allar myndirnar og sendir heim. Þið fáið ekki bara slóð í inboxið, heldur eitthvað áþreifanlegt sem má setja á borð, í albúm eða gefa áfram.
- Gestir fá sínar myndir heimsendar og prentaðar
- Brúðkaupshjón fá myndir útprentaðar og heimsendar úr símum allra gestanna
- Stafræn afrit sent á brúðkaupshjón eftir brúðkaupið

Lightsnap er einnotamyndavél í símanum
Lightsnap er al-íslenskt app sem er að hjálpa notendum að fanga augnablik svo þau týnist ekki í svartholi snjallsímans. Við höfum afhent yfir 10.000 filmur til notenda, prentað og afhent yfir 100.000 myndir og Lightsnap hefur verið notað í yfir 100 viðburðum.
Viltu sjá hvort þetta passi fyrir brúðkaupið ykkar?
Sendu okkur dagsetningu, stað og áætlaðan gestafjölda. Við svörum með næstu skrefum.